Sport

Byrjunarlið Íslands gegn Svíum

Íslendingar mæta Svíum á Laugardalsvelli í kvöld
Íslendingar mæta Svíum á Laugardalsvelli í kvöld Mynd/Valli

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem tekur á móti Svíum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld. Þrjár breytingar hafa verið gerðar á liðinu frá síðasta leik.

Arnar Þór Viðarsson, Kristján Örn Sigurðsson og Emil Hallfreðsson koma inn í liðið í stað þeirra Stefáns Gíslasonar, Kára Árnasonar og Brynjars Björns Gunnarssonar - sem tekur út leikbann.

Leikaðferðin verður 4-4-2. Árni Gautur stendur í markinu. Í vörninni standa þeir Indriði Sigurðsson, Kristján Örn Sigurðsson, Ívar Ingimarsson og Hermann Hreiðarsson, en Hermann spilar sinn 70. landsleik í kvöld. Miðjumenn eru Emil Hallfreðsson, Grétar Rafn Steinsson, Jóhannes Karl Guðjónsson og Arnar Þór Viðarsson og þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Hannes Þ. Sigurðsson verða í framlínunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×