Lífið

In and out of Africa

Myndin byggir að mestu á rannsóknum mannfræðingsins Christopher Steiners, sem gerði viðamiklar vettvangsrannsóknir á afrísku handverki á Fílabeinsströndinni.
Myndin byggir að mestu á rannsóknum mannfræðingsins Christopher Steiners, sem gerði viðamiklar vettvangsrannsóknir á afrísku handverki á Fílabeinsströndinni.

Heimildamyndin In and out of Afrika eftir Ilisa Barbash og Lucien Taylor

sem framleidd var árið 1992 í Háskólanum í Berkeley, Kaliforníu, verður sýnd í ReykjavíkurAkademíunni fimmtudagskvöldið 12. október kl. 20.

Katla Kjartansdóttir, þjóðfræðingur, fylgir myndinni úr hlaði.

Myndin fjallar í hnotskurn um fljótandi merkingu afrískra lista, og veltir upp áleitnum spurningum um samband Vesturlandabúa við afríska menningu. Hún sýnir á skoplegan og oft írónískan hátt hvernig gildi listmuna breytist eftir því í hvaða samhengi þeir eru settir. Höfundar myndarinnar vefa saman á skemmtilegan hátt sögur af vestrænum listaverkasöfnurum, múslímskum kaupmönnum og afrískum listamönnum og fræðimönnum. Myndavélin fylgir listaverkahöndlara frá Níger eftir á ferðum hans um heimahéruð og til Kaliforníu í Bandaríkjunum. Við sjáum hvernig þessi snjalli kaupmaður býr til eða bætir við verðgildi hlutanna og breytir þar með huglægri merkingu þeirra með því að leika hlutverk einskonar menningarmiðlara. Hann túlkar t.d. sama hlutinn á mismunandi hátt eftir því hvað hann heldur að hinn vestræni kaupandi vilji heyra, og spinnur sögur um hlutina þar sem það á við. Einnig sjáum við hvernig afrískum munum er breytt með ýmsum leiðum til þess að auka við eða falsa gildi þeirra. Þetta sem vekur áhorfandann til umhugsunar um margslungin hugtök eins og „hið ósvikna" (authenticity), upprunaleika og hvað er „ekta" og hvað ekki?

Myndin byggir að mestu á rannsóknum mannfræðingsins Christopher Steiners, sem gerði viðamiklar vettvangsrannsóknir á afrísku handverki á Fílabeinsströndinni. Hún er í raun sjónræn etnógrafía og því hentar kvikmyndamiðillin einkar vel til að koma rannsóknarniðurstöðum og gögnum til skila til áhorfandans.

Myndin tekur um klukkustund í sýningu og er með enskum texta. Aðgangur er ókeypis.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.