Sport

Byrjunarlið Íslands gegn Lettum

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt liðið sem byrjar inná fyrir Íslands hönd gegn Lettum í undankeppni EM 2008 í Riga í kvöld. Eyjólfur stillir upp í leikkerfið 4-4-1-1 og verður með Jóhannes Karl Guðjónsson fyrir aftan Eið Smára sem leikur í fremstu víglínu.

Kári og Hannes Þorsteinn verða á vængjunum og þeir Stefán og Brynjar Björn verða inná miðri miðju. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending kl. 17:50.

Ísland (4-4-1-1): Árni Gautur Arason - Indriði Sigurðsson, Hermann Hreiðarsson, Ívar Ingimarsson, Grétar Rafn Steinsson - Kári Árnason, Stefán Gíslason, Brynjar Björn Gunnarsson, Hannes Þorsteinn Sigurðsson - Jóhannes Karl Guðjónsson - Eiður Smári Guðjohnsen.

gras.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×