Innlent

Á slysadeild eftir árekstur við kyrrstæðan bíl

Þrjár fimmtán ára stúlkur þurftu að leita á slysadeild eftir að bíl, sem þær voru farþegar í, var bakkað á kyrrstæðan bíl. Við stýrið var 17 ára drengur og var áreksturinn svo harður að fjarlægja varð kyrrstæða bílinn af vettvangi vegna skemmda. Ekki er vitað frekar um meiðsli stúlknanna.

Þá stöðvaði lögreglan í Reykjavík för 25 ára karlmanns á Suðurlandsvegi. Sá virtist vera að flýta sér mjög mikið því við framúrakstur ók viðkomandi bíl sínum yfir tvær óbrotnar línur. Aksturslag af þessu tagi er vítavert og á ekki að eiga sér stað, segir á vef lögreglunnar.

Í tveimur umferðaróhöppum í gær fóru ökumenn af vettvangi án þess að axla ábyrgð. Þá voru tveir teknir í nótt fyrir ölvunarakstur, annar í miðborginni en hinn í austurbænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×