Erlent

Fjölmargir týnt lífi í óveðri á Indlandi og í Bangladesh

Minnst 95 hafa týnt lífi í miklu óveðri sem hefur geisað á Indlandi og í nágrannaríkinu Bangladesh síðustu daga. Mörg hundruð manns hafa slasast.

Stormurinn hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar á tveimur svæðum í Vestur-Bengal. Mörg þúsund moldarkofar hafa fokið um koll þar, tré rifnað upp með rótum og raf- og símalinur eyðilagst.  Óttast er að fleiri hafi týnt lífi í veðurhamnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×