Erlent

Hryðjuverkaárás á sendiráð Bandaríkjamanna í Damascus

All bendir til þess að hryðjuverkaárás hafi verið gerð á sendiráð Bandaríkjamanna í miðborg Damascus í Sýrlandi í morgun.

Að sögn Reuters fréttastofunnar má sjá svartan reyk leggja frá byggingunni auk þess sem heyra megi skothríð í næsta nágrenni við hana.

Sýrlenskar öryggissveitir hafa umkringt bygginguna. Sky fréttastöðin breska hefur eftir heimildarmönnum að tekist hafi að koma í veg að hryðjuverkarmönnum tækist ætlunarverk sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×