Ég er á hátindi ferilsins 9. september 2006 15:17 Andy Johnson var frábær í dag. Getty Images
Andy Johnson, framherji Everton, sagði eftir sigurleikinn í dag að hann væri á hátindi ferils síns sem knattspyrnumaður. Sjónvarpsmaður BBC í Englandi sagði við Johnson eftir leikinn að fyrst hann væri í landsliðinu, í sínu besta formi og nýbúinn að skora tvisvar í einhverjum mesta grannaslag enska boltans, hlyti hann að standa framar á ferlinum en hann hafi nokkurn tíma gert. Johnson tók undir það. "Ég held að ég geti alveg tekið undir það að ég sé á hápunkti ferilsins. Þetta gerist varla mikið betra," sagði Johnson en bætti hógvær við: "Það er auðvitað frábært að skora tvisvar en stigin þrjú eru aðalatriðið. "Liðið spilaði mjög vel og þegar maður er framherji með svona góða fótboltamenn fyrir aftan sig er ekki erfitt að koma sér í færin. Það er mitt að nýta þau og það tókst í dag." David Moyes, stjóri Everton, var einnig í skýjunum og sagði Johnson vera að standa undir væntingum og gott betur. "Þetta var frábær frammistaða og Andy er að gera það sem hann gerir best. Við fengum hann hingað til að skora og það er einmitt það sem hann er að gera." Rafa Benitez, stjóri Liverpool, var hins vegar þungur á brún. "Við gerðum alltof mörg mistök í vörninni og okkur var einfaldlega refsað."
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Tólf leikmenn komnir til KR Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Tímabært að breyta til Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Kallaði dómarann tík og rúmlega það Verstappen áfram hjá Red Bull Atli og Eiður í KR Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Sjá meira