Innlent

Lögregla auglýsir eftir vitnum

MYND/Pjetur

Lögreglan auglýsir eftir vitnum að líkamsárás við veitingastaðinn Pravda í Austurstræti á milli klukkan hálffjögur og hálffimm aðfararnótt sunnudagsins 27. ágúst. Þar var bandarískum ferðamanni veitt þungt hnefahögg í andlitið og hlaut hann verulega áverka. Skömmu áður hafði þessi sami ferðamaður og félagi hans gefið sig á tal við íslenskar stúlkur á Lækjartorgi. Lögreglan í Reykjavík biður áðurnefndar stúlkur að gefa sig fram sem og alla aðra sem geta gefið vísbendingar um árásina á ferðamanninn. Sími lögreglunnar í Reykjavík er 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×