Sport

Ísland yfir 3-0 í hálfleik

Eiður Smári er orðinn markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi ásamt Ríkharði Jónssyni með 17 mörk
Eiður Smári er orðinn markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi ásamt Ríkharði Jónssyni með 17 mörk NordicPhotos/GettyImages
Íslenska landsliðið hefur yfir 3-0 gegn Norður-Írum á Windsor Park í Belfast þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk íslenska liðsins, sem er sannarlega í vænlegri stöðu. Það eina sem skyggir á frábæran árangur liðsins er að Kári Árnason þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleiknum en í hans stað er Helgi Valur Daníelsson kominn inn í íslenska liðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×