Erlent

Einn í haldi vegna sprengju í Fredriksberg

Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið mann um þrítugt vegna gruns um að hann hafi valdið sprengingu á sólbaðsstofu við Finsenvej í Fredriksberg í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Að sögn Extrablaðsins danska var sprengingin svo öflug að veggur hrundi, rúður brotnuðu og eldur barst í nálægar íbúðir. Engan sakaði utan grunaðan sprengjuvarg sem slasaðist nokkuð og var fluttur á sjúkrahús eftir að lögregla hafði hendur í hári hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×