Erlent

Fjórir danir kærðir fyrir tilraun til hryðjuverkaárásar

Dómsmálaráðaherra Danmerkur hefur ákveðið að ákæra fjóra unga Dani fyrir tilraun til hryðjuverkaárásar. Mennirnir voru handteknir af lögreglunni í Glostrup í október á síðasta ári. Þeir höfðu lagt á ráðin  með  tveimur öðrum mönnum sem sitja í fangelsi í Sarajevó í Bosníu og bíða þess að réttað verði í máli þeirra. Mikið magn af sprengiefni fannst í fórum þeirra og þeir höfðu meðal annars framleitt sjálfsvígssprengibelti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×