Erlent

Reyna að tryggja lausn tveggja starfsfélaga

Tveir fulltrúar frá bandarísku fréttastöðinni Fox komu á Gaza-svæðið í dag til að reyna að tryggja lausn tveggja starfsfélaga sinna sem byssumenn rændu í gær.

Um er að ræða bandarískan fréttamann og tökumann frá Nýja Sjálandi. Fulltrúar Fox funda nú með fulltrúum palestínskra öryggissveita og síðar með Abbas, forseta Palestínumanna, og Haniyeh, forsætisráðherra í heimastjórninni. Talsmaður Abbas segir forsetann fordæma mannránin. Engin samtök hafa lýst því yfir að þau standi að baki mannránunum og engin krafa hefur verið gerð um lausnargjald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×