Sport

Gaf rúman milljarð króna til spítala í Kongó

Dikembe Mutombo leikur með Houston Rockets
Dikembe Mutombo leikur með Houston Rockets NordicPhotos/GettyImages

Körfuboltamaðurinn Dikembe Mutombo sem leikið hefur í NBA í 15 ár hefur lagt til rúman milljarð króna til að koma á fót stóru sjúkrahúsi í heimaborg sinni Kinshasa í Kongó. Sjúkrahúsið verður skírt í höfuðið á móður Mutombo sem lést árið 1997 og mun hýsa um 300 sjúkrarúm.

Mutombo ólst upp í Kongó ásamt níu systkynum sínum, en flutti til Bandaríkjanna og stundaði nám við Georgetown-háskólann þar sem hann ætlaði sér upphaflega að verða læknir. Þetta átti eftir að breytast eftir að hann hóf að leika körfuknattleik, en knattspyrnan átti hug hans allan fram eftir aldri.

Sjúkrahúsið í Kinshasa mun kosta um 2 milljarða króna í byggingu og ekki veitir af, því heilsugæslu er stórlega ábótavant í landinu. Eitt af hverjum fimm börnum sem fæðast í landinu deyja fyrir fimm ára aldur, sjúkdómar eins og Malaría, HIV, Mislingar og Kólera hafa grasserað þar lengi og lífslíkur fólks eru 42 ár fyrir karlmenn og 47 ár fyrir konur.

Mutombo sjálfur var mjög hætt kominn árið 1999 þegar hann sneri aftur til Bandaríkjanna eftir heimsókn til Kongó, en þá veiktist hann af Malaríu og hneig niður eftir leik á undirbúningstímabilinu. Hann var færður á spítala í Atlanta, þar sem aðeins tilviljun réði því að læknar fundu út hvað var að honum. Svo ótrúlega vildi til að lærlingur frá Afríku var við störf á sjúkrahúsinu og þekkti einkennin, sem urðu til þess að bjarga lífi Mutombo.

Hann hefur alla tíð verið mjög ötull við að gefa fé til góðgerðarmála í heimalandi sínu og er þessi nýjasta og rausnarlegasta gjöf hans eflaust gefin með atburði ársins 1997 í huga, en þá lést móðir hans af veikindum. Á þeim tíma var mikil ólga í Kinshasa og þó sjúkrahúsið væri stutt frá heimili hennar, tókst ekki að koma henni undir læknishendur í tæka tíð, því göturnar voru tepptar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×