Sport

Sigurinn á Chelsea veitir okkur aukið sjálfstraust

Luis Garcia
Luis Garcia

Luis Garcia segir að sigur Liverpool á Chelsea í leiknum um samfélagsskjöldinn í gær hafi veitt liðsmönnum Liverpool aukið sjálfstraust sem sé nauðsynlegt veganesti í baráttuna sem framundan er í ensku úrvalsdeildinni.

"Sigurinn á Chelsea var mjög mikilvægur sálfræðilega séð og sýnir okkur að við erum tilbúnir í slaginn í deildinni. Við veittum Chelsea harða keppni í fyrra og næsta tímabil verður ekkert öðruvísi að því leiti. Við erum með hungrað og þétt skipað lið þar sem metnaðurinn er í fyrirrúmi. Chelsea er með frábært lið, en það er ekki alltaf nóg að vera með fullt lið af stjörnum. Við sýndum það á sunnudaginn að Chelsea er ekki ósigrandi," sagði Garcia í samtali við Sky-sjónvarpsstöðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×