Erlent

Íbúðablokk hrundi á Alicante

Sex slösuðust þegar íbúðablokk í Alicante á Spáni hrundi um hádegi í gær. Slökkviliðsmenn segja gashylki hafa sprungið með þessum afleiðingum. Byggingin er á þremur hæðum. Einn unglingur var fastur í rústum byggingarinnar og þegar síðast fréttist var enn verið að reyna að bjarga honum. Sá mun hafa hringt á björgunarsveitir þegar sprengingin varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×