Sport

Gatlin gæti farið í ævilangt bann

Gatlin í skýjunum eftir að hann jafnaði heimsmetið í Qatar 12. maí síðastliðinn.
Gatlin í skýjunum eftir að hann jafnaði heimsmetið í Qatar 12. maí síðastliðinn. MYND/AP

Heims- og Ólympíumeistarinn í 100 metra spretthlaupi Justin Gatlin gæti átt yfir höfði sér ævilangt keppnisbann. Hann féll á lyfjaprófi í apríl og B prufa reyndist einnig vera jákvæð fyrir testósterón.

Gatlin tilkynnti á laugardaginn að hann hafi fallið á lyfjaprófi í apríl. Það hefur verið staðfest nú að hann féll einnig á B prufu.

Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna tekur málið fyrir og útlitið er vægast sagt dökkt fyrir meistarann sem gæti átt yfir höfði sér ævilangt keppnisbann.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×