Lífið

Styttist í endalokin

Styttist í annan endan á þessu ævintýri. Sit hérna útí sólinni með fartölvuna. Frekar svekkt því að tónleikar sem ég var búin að hlakka til að sjá, var frestað rétt í þessu. Damian jr. Gong Marley sonur Bobs Marleys. Hefði verið gaman að sjá hann á sviði. Gærkvöldið var fínt, dillaði mér við Kanye West í gærkveldi, kannski ekki alveg minn tebolli, en samt stemning að standa þarna í myrkrinu í þvögunni.

Toppaði allt þegar ungfrú einhver tróðst fram fyrir mig, girti niðrum sig, pissaði, stóð upp og hélt áfram göngu sinni inní þvöguna.

Þannig að þið getið ímyndað ykkur hvað "þvagagnaóttinn" varð mikill he he he.

Annars sýnist mér vera fararsnið á fólki, margir að pakka saman og einhver sagði mér að það væri hefð að kveikja í tjöldunum á sunnudagskvöldinu. Í kvöld eru samt mörg góð bönd að spila, t.d Artic Monkeys, Placebo, Franz Ferdinand,The Strokes, Goldfrapp, Roger Waters og Kaiser Chiefs og fleiri og fleiri maður má ekki sleppa því;)

Tjaldstæðið er orðið eins og ruslahaugur, og ég verð að játa það að ég hlakka bara nokkuð til að pakka saman komast til Kaupmannahafnar.

Planið er semsagt að njóta þess sem í boði er í dag og taka svo lestina ásamt hinum þúsundunum frá Hróarskeldu.

Þetta er búið að vera fínt hérna og öll skipulagning og utanumhald til fyrirmyndar. Veit ekki hvort ég komi aftur að ári, en þá tjalda ég amk ekki á tjaldstæði F.

Kveð í bili

hadda

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.