Lífið

Gott veður og mikil stemning

Sól sest á Hróarskeldu í kvöld
MYND/ hh
Sólin kom og ég græddi nokkrar freknur, sumir græddu líka fínan rauðan lit, sem kallast stundum sólbruni. Veðrið spilar stóran þátt í að svona risaveldi eins og þetta festival gangi vel fyrir sig. Skemmtilegt hvað allir verða eitthvað glaðir í góðu veðri svo er líka ágætt að hafa bjórinn á hálfvirði.

Eftir að hafa nýtt mér klósettaðstöðu fréttamanna (þökkum gvuði fyrir hana), skannaði ég svæðið aðeins í dag. Maður gengur hér um með kort og reynir að rata, en þetta er allt að koma. Dagurinn fór rólega af stað, allir að ná sér eftir gærkvöldið og gestir sem ég hitti ánægðir með bönd gærdagsins. Hitti t.d einn þýskan blaðamann sem átti ekki til orð yfir Sigur Rós, ég var eiginlega farin að roðna fyrir þeirra hönd. Held að við ættum bara að fá þessa menn á þing. Slík er hamingjan með þá hérna í það minnsta.

Eftir að við höfðum stólað okkur upp og gert svolítið "smart" hjá okkur á tjaldstæðinu, var þrammað yfir á tónleikasvæðið og notið tónlistarinnar sem í boði var í kvöld. Byrjuðum á Morrissey, þaðan lá leið mína á kanadíska snillinginn Rufus Wainwright, en Bob Dylan leysti hann svo af hólmi. Þetta var allt saman alveg ágætt og eiginlega stórgott, enda er hér mikil og góð stemning.

En nóttin er ung, og mikið af böndum eftir á dagskránni. Held ég hleypi hér öðrum fréttamönnum að og fari og fái mér eitthvað í gogginn fyrir seinnihálfleik í tónleikahaldinu.

Hilsen

Eftir að við höfðum stólað okkur upp og gert svolítið "smart" hjá okkur á tjaldstæðinu, var þrammað yfir á tónleikasvæðið og notið tónlistarinnar sem í boði var í kvöld. Byrjuðum á Morrissey, þaðan lá leið mín á kanadíska snillinginn Rufus Wainwright, en Bob Dylan leysti hann svo af hólmi. Þetta var allt saman alveg ágætt og eiginlega stórgott, enda er hér mikil og góð stemning og stórmeistara á ferð. Held hinsvegar að ég sé ekkert að þenja mig með einhverri tónlistargagnrýni, enda margir mun betri en ég í þeirri deild. Þessir listamenn snertu mig a.m.k ekki eins mikið og Axl Rose í gær.

En nóttin er ung, og mikið af böndum eftir á dagskránni. Held ég hleypi hér öðrum fréttamönnum að og fari og fái mér eitthvað í gogginn fyrir seinnihálfleik í tónleikahaldinu, þar sem ég ætla meðal annars að sjá Scissor sisters og Kashmir.

Hilsen til Íslands

Hadda






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.