Erlent

Lík eins námamanns af 65 fundið

Björgunarsveitarmenn fundu í gær lík námamanns sem var einn 65 sem festust í námu í Mexíkó í febrúar. Sprenging var í námunni og sátu mennirnir fastir og ekkert gekk að komast að þeim. Björgunarmenn leita nú að líku hinna.

Ættingjar námamannanna segja að það hafi legið fyrir að fyllsta öryggis væri ekki gætt í námunni og búnaður ekki nægilega góður. Fóru því rúmlega fimm þúsund starfsmenn námafyrirtækisins í verkfall fyrr á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×