Tilbúnir til viðræðna 31. maí 2006 18:13
Bandaríkjamenn segjast reiðubúnir til að hefja beinar viðræður við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra en útiloka ekki að beita hervaldi fari samningar út um þúfur. Þetta kom fram á blaðamannafundi Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna í dag en fram til þessa hafa Bandaríkjamenn látið aðrar þjóðir um að ræða við Írana um kjarnorkumálin. Ekkert stjórnmálasamband hefur raunar verið á milli Teheran og Washington frá klerkabyltingunni 1979 og því er um umtalsverða stefnubreytingu að ræða. Tilboðið er þó háð því að Íranar láti samstundis af auðun úran en geri þeir það bíða þeirra skýrir valkostir. Ástæða þessara umskipta er vafalaust sú að bandarísk stjórnvöld vilja sýna að þeim sé alvara með að leysa þessa alvarlegu deilu eftir diplómatískum leiðum en sé ekki einungis að leita að átyllu til að ráðast á Íran. Rice ítrekaði þó að ákvörðunin þýddi ekki að valdbeiting væri þar með útilokuð, heldur væru allir kostir ennþá uppi á borðinu. Hún hnykkti jafnframt á því að engin teikn væru á lofti um að fullt stjórnmálasamband á milli ríkjanna yrði tekið upp í bráð.
Erlent Fréttir Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira