Sport

Terry lenti í átökum við Ballack

John Terry er spenntur fyrir komu Michael Ballack á Stamford Bridge
John Terry er spenntur fyrir komu Michael Ballack á Stamford Bridge NordicPhotos/GettyImages

John Terry segist fagna komu þýska miðjumannsins Michael Ballack til Chelsea, en viðurkenndi í dag að þeir hefðu lent í riskingum fyrir leik Chelsea og Bayern Munchen í meistaradeildinni.

"Ég hlakka mikið til að fá Ballack til Chelsea. Hann er frábær miðjumaður og hefur skorað mikið af mörkum fyrir Þjóðverja og Bayern Munchen. Frank Lampard er líka ánægður að vera að fá hann hingað," sagði Terry og greindi frá riskingum þeirra félaga í undirgöngunum fyrir annan leik liðanna í meistaradeildinni í fyrra.

"Okkur lenti aðeins saman í undirgöngunum, mér, honum og Oliver Khan - en það var allt bara partur af leiknum," sagði Terry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×