Sport

Phoenix valtaði yfir Houston

Shawn Marion var góður í liði Phoenix í nótt og skoraði 16 stig og hirti 12 fráköst
Shawn Marion var góður í liði Phoenix í nótt og skoraði 16 stig og hirti 12 fráköst NordicPhotos/GettyImages

Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt, en þetta voru síðustu leikirnir í deildinni fyrir hlé sem gert er vegna Stjörnuleiksins um helgina. Phoenix Suns valtaði yfir Houston á heimavelli sínum 109-75, þar sem Steve Nash skoraði 21 stig og Shawn Marion 16 fyrir Phoenix, en Stromile Swift skoraði 13 stig fyrir Houston.

Chicago rótburstaði Philadelphia sömuleiðis 117-84. Ben Gordon skoraði 21 stig fyrir Chicago, en Allen Iverson skoraði 18 fyrir Philadelphia.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×