Sport

Pearce skiptir um skoðun

Stuart Pearce
Stuart Pearce NordicPhotos/GettyImages

Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, virðist hafa skipt um skoðun varðandi áhuga á að taka við enska landsliðinu, því eftir að hafa brugðist reiður við þegar hann var fyrst orðaður við starf landsliðsþjálfara, hefur hann nú viðurkennt að hann mundi ræða við enska knattspyrnusambandið ef það leitaði til hans.

"Það væri auðvitað asnalegt að ræða ekki við menn og sýna þeim þá virðingu að hlusta ef þeir kæmu til mín og með það fyrir augum að bjóða mér vinnu. Ég er hinsvegar raunsæismaður og staðreyndin er sú að það er fullt af mönnum þarna úti sem hafa betri ferilskrá en ég."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×