Bíó og sjónvarp

Skáldað íslenskt sakamál

Björn Brynjólfur Björnsson. Þreytir frumraun sína á hvíta tjaldinu með Kaldri slóð. Hann tók sér fimm ár í verkið og leggur það bjartsýnn í dóm áhorfenda á morgun.
Björn Brynjólfur Björnsson. Þreytir frumraun sína á hvíta tjaldinu með Kaldri slóð. Hann tók sér fimm ár í verkið og leggur það bjartsýnn í dóm áhorfenda á morgun.

Spennumyndin Köld slóð verður frumsýnd á morgun. Myndin er fyrsta kvikmynd leikstjórans Björns Brynjúlfs Björnssonar í fullri lengd en hún fjallar um blaðamann sem flækist óvænt í morðmál sem snertir fortíð hans.

Björn samdi söguna en Kristinn Þórðarson skrifaði handritið og þeir félagar unnu verkið náið saman og tóku sér fjögur ár í handritsvinnuna.

„Við byrjuðum á þessu verkefni fyrir fimm árum á sama tíma og verið var að skrifa mikið af þessum glæpa- og spennubókmenntum sem hafa verið að koma út,“ segir Björn Brynjúlfur og bætir því við að þeir félagar hafi leitast við að skrifa sannfærandi sakamálasögu inn í íslenskan samtíma.

Sakamálasagan verður að virka„Þetta er það sama og glæpasagnahöfudnarnir hafa verið að fást við. Að búa til sögu sem virkar í íslenskum samtíma enda fær fólk ekki notið sögunnar ef það rekst á að hún fái ekki staðist en slíkt eyðileggur auðvitað upplifunina af sögunni. Þetta er snóker sem fólk hefur verið að leysa í glæpasögum að undanförnu og okkur er vonandi að takast það líka í bíómyndum,“ segir Björn og tekur undir að velgengni Mýrar Baltasars Kormáks bendi til þess að íslenskar sakamálamyndir hafi fundið sér greiðan farveg að bíógestum. Unnið náið með leikurunum

Eftir fjögurra ára handritsvinnu gaf Björn sér góðan tíma til þess að slípa handritið með leikurunum. „Að mínu mati skipta tvö lykilatriði máli í kvikmyndagerð að sagan sé góð og leikurinn sé góður og ég lagði mikið upp úr þessu. Við gáfum okkur óvenju mikinn tíma með leikurunum og unnum með persónurnar í þrjá mánuði fyrir tökur án þess að vera beinlínis að æfa handritið.

Við sendum leikarana svo heim og leyfðum þeim að láta þetta malla innra með sér áður en við fórum í sex vikna æfingar fyrir tökur. Þá unnum við töluvert með taktinn í handritinu og löguðum línurnar að hverri persónu fyrir sig.“

Björn segir þetta verklag hafa komið sér ákaflega vel í framleiðsluferlinu þar sem „leikararnir voru svo vel æfðir að þeir hefðu getað leikið myndina frá upphafi til enda eins og þeir væru á sviði“.

Úr auglýsingum í bíómyndir

Björn Brynjúlfur er enginn nýgræðingur bak við tökuvélina þó að Köld slóð sé fyrsta bíómyndin hans en hann er margverðlaunaður auglýsingaleikstjóri og á að baki fjölmarga sjónvarpsþætti. Árið 2004 gerði hann leikna sjónvarpsmynd byggða á Njálu og á árunum 1998 til 2002 gerði hann tólf þætti í sjónvarpsþáttaröðinni Sönn íslensk sakamál sem skiluðu honum Edduverðlaunum.

„Reynsla mín af auglýsingagerðinni var góður grunnur fyrir þessa vinnu, ekki síst á sjónræna sviðinu og í vinnsluferlinu.“ Björn bendir jafnframt á að hann sé síður en svo sá fyrsti sem fikri sig úr auglýsingum í bíó og nægir í því sambandi að nefna Hollywoodstórlaxa á borð við bræðurna Ridley og Tony Scott og Alan Parker.

„Ég gæti alveg hugsað mér að halda áfram á þessari braut og gera aðra bíómynd. Þetta er skemtileg og gefandi vinna og þó að ég þekki kvikmyndagerðaþáttinn vel þá var vinnan með leikurunum ný fyrir mér og það skemmtilegasta í þessu öllu saman.“

Kominn með frumsýningarfiðringKöld slóð verður frumsýnd á morgun og þó að Björn sé tilbúinn til þess að leggja verk sitt í dóm áhorfenda viðurkennir hann fúslega að hann sé kominn með frumsýningarfiðring. „Þetta er svolítið stress, kannski ekki síst vegna þess að þetta er fyrsta myndin mín og fyrsta handrit Kristins sem verður að kvikmynd þannig að ég get ekki neitað því að það sé kominn fiðringur í mannskapinn. En ég er búinn að skila og þetta er komið úr höndum mínum. Nú verður bara að koma í ljós hvort einhver kunni að meta þetta þannig að ég er auðvitað spenntur. Það er aldrei hægt að vita neitt fyrirfram í þessum bransa. Það er engin formúla til þannig að maður rennir blint í sjóinn.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×