Tónlist

Hátíðlegt við Hagatorg

Hulda Jónsdóttir fiðluleikari Leikur í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hulda Jónsdóttir fiðluleikari Leikur í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands. MYND/GVA

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verða haldnir í Háskólabíói í dag en sveitin hefur í rúman áratug kappkostað að koma landsmönnum í hátíðarskap með aðstoð góðra gesta.

Einleikari á tónleikunum nú er ungur fiðluleikari, Hulda Jónsdóttir, sem stundar nám við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Guðnýjar Guðmundsdóttur, konsertmeistara Sinfóníunnar. Hulda er aðeins fimmtán ára gömul og er yngsti nemandinn sem hefur verið tekinn inn í Listaháskólann frá stofnun skólans en hún er á svokallaðri diplómabraut sem stofnuð var fyrir unga framúrskarandi hljóðfæraleikara. Hulda leikur í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveitinni.

„Þetta leggst ósköp vel í mig, þetta er mjög spennandi og mikill heiður fyrir mig,“ segir Hulda. „Ég leik verk eftir Wieniawski, Polonaise de concert op. 4. nr. 1 í D-dúr, sem er svona glansstykki, virtúósaverk sem sýnir til dæmis tæknilega getu hljóðfæraleikarans.“ Hulda leikur á fiðlu sem smíðuð var af Vincenzo Sannino í kringum árið 1920, en Victor Fetique gerði bogann. Hvort tveggja hefur hún að láni frá Rachel Elizabeth Barton-stofnun­inni í Chic-ago.

Á jólatónleikunum koma einnig fram nemendur úr Listdansskólanum og dansa við Hnotubrjót Tsjajkovskíjs. Danshöfundur og kennari stúlknanna er Sigríður Guðmundsdóttir, kennari í klassískum listdansi við Listdansskóla Íslands. Kynnir á tónleikunum er Margrét Örnólfsdóttir en stjórnandi Bernharður Wilkinson.

Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 14 en hinir síðari kl. 17. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.sinfonia.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.