Bíó og sjónvarp

Ánægja með nýju Rocky

Sylvester Stallone í fantaformi í nýju Rocky-kvikmyndinni.
Sylvester Stallone í fantaformi í nýju Rocky-kvikmyndinni.

Almenn ánægja ríkir meðal áhorfenda með nýjustu kvikmynd Sylvester Stallone, Rocky 6, en margir spáðu því að búið væri að blóðmjólka persónuna. Sextán ár eru síðan síðasta Rocky-mynd kom út og heil þrjátíu síðan fyrsta myndin leit dagsins ljós.

Í nýju myndinni er boxarinn Rocky farinn að eldast en fær sérstakt tækifæri til þess að keppa við nýjan heimsmeistara. Stallone, sem er orðinn sextugur, leikstýrir myndinni og skrifar handritið en er einnig sagður vera góður í hlutverki sínu og sjaldan hafa verið í jafngóðu formi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.