Framtíðinni breytt 14. desember 2006 11:45 Denzel Washington Rannsakar sprengjutilræði aftur á bak í Deja Vu.
Denzel Washington leikur alríkislögreglumann sem fær undarlegt tækifæri til þess að breyta framtíðinni, í Deja Vu, nýjustu spennumynd leikstjórans Tony Scott. Hann rannsakar sprengjutilræði og á meðan á ransókninni stendur fer hann að upplifa hluti sem hann kannast við en getur ekki komð fyrir sig. Hann virðist vera kominn á einhvers konar tímaflakk sem gæti gert honum kleift að koma í veg fyrir glæpinn sem hann rannsakar áður en hann er framinn. Flókið? Vissulega og Washington kemst ef til vill næst því að útskýra söguna sjálfur. „Ég hef allan ferilinn reynt að hafa hendur í hári fólks eftir að það gerir eitthvað hræðilegt en fæ nú þetta einstaka tækifæri til þess að stöðva fólk áður en það gerir eitthvað hræðilegt. Skilið?“ Það er ekki gott að segja en það má þó ganga að því sem vísu að ýmislegt muni ganga á hjá Denzel á meðan hann reynir að breyta framtíðinni þar sem myndin er runnin undan rifjum ofurframleiðandans Jerry Bruckheimer sem er í sérflokki þegar kemur að því að keyra upp spennnu og sprengja fólk og hluti. Bruckheimer mun hafa heillast svo af flóknu handritinu að hann festi kaup á því sólarhring eftir að hann sá það fyrst og fól svo Tony Scott að koma því á filmu. Scott gat sjálfur ekki hugsað sér annan mann en Washington til þess að fara með aðalhlutverkið en þeir tveir leiddu síðast saman hesta sína í spennumyndinni Man on Fire.
Mest lesið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Fleiri fréttir Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira