Skoðun

Leiðin til jafnvægis

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar
Ekkert er eins mikilvægt fyrir íslenskan almenning og að koma á jafnvægi í íslensku samfélagi og hagkerfi. Loforð stjórnarflokkanna til almennings um betri kjör í formi skattalækkana og hærri húsnæðislána hafa því miður reynst bjarnargreiði. Nýir útreikningar sýna að verðbólga undanfarinna ára, sem rekja má til efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, hefur étið upp allan ávinninginn af lægra skatthlutfalli hjá venjulegum fjölskyldum og það sem verra er, skuldabyrði þessara heimila hefur aukist verulega.

Tökum dæmi af hjónum með 500.000 krónur heildartekjur á mánuði sem tóku 12,5 milljóna króna húsnæðislán til 20 ára árið 2003. Þessi hjón hefðu að öðru jöfnu fengið 110 þúsund krónur vegna lægri skatta á kjörtímabilinu. Verðbólgan hefur hins vegar hækkað afborgunina af húsnæðisláni þeirra um jafnháa upphæð, m.ö.o. skattalækkunin er öll farin í hærri afborganir af húsnæðisláninu. En það segir ekki alla söguna - uppreiknaður höfuðstóll húsnæðislánsins hefur hækkað um 1 milljón króna umfram það sem gerst hefði ef verðbólgan hefði verið í samræmi við markmið Seðlabankans. Sú hækkun veldur því að hjónin munu greiða vexti af þessari viðbótar milljón næstu 16 árin.

Hvað er til ráða? Við þurfum að stuðla að nýju jafnvægi í efnahagsmálum, draga úr stóriðjuframkvæmdum sem valda krampakenndri þenslu en þess í stað skapa atvinnulífinu heilbrigt starfsumhverfi. Við getum dregið til okkar þekkingarfyrirtæki m.a. í fjármálastarfsemi en jafnvægi er alger forsenda þess að þau leiti hingað til lands. Við þurfum að styrkja þann grundvöll sem getur staðið undir öflugu þekkingarhagkerfi í landinu- menntastofnanir, öflugar samgöngur og háhraðanettengingu um land allt. Og við verðum að skoða af fullri alvöru aðild að Evrópusambandinu, því upptaka evru myndi - þegar fram líða stundir - stuðla að auknu jafnvægi í okkar efnahagsmálum, styrkja rekstrarskilyrði fyrirtækja og bæta verulega kjör heimilanna í landinu. Öflug fyrirtæki og fjársterkir einstaklingar flýja nú krónuna unnvörpum en íslenskur almenningur situr fastur í rússíbananum.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×