Skoðun

Framsókn rifjar upp gamla takta

Gaman væri nú að skrifa virkilega krassandi pistil um nýleg ummæli formanns Framsóknarflokksins um hömlulaust afturhald, öfgahugmyndir í umhverfismálum og um niðurrifsöflin á vinstri væng stjórnmálanna.

En ég leyfi mér að sniðganga þau í bili, en fjalla frekar um það hvernig maðurinn reyndi í ræðu sinni á miðstjórnarfundi flokksins á laugardaginn að kenna samstarfsflokknum um allt sem aflaga hefur farið, að hans mati, í stjórnarsamstarfinu hingað til. Hann sagði beinum orðum að framsóknarmenn þyrftu á því að halda að greina sig frá samstarfsflokknum því flokkarnir tveir hafi ólíka sýn í ýmsum málum.

Gamlir taktar

Það hefur verið viðtekin venja að Framsóknarflokkurinn skilgreini sig sem stjórnarandstöðuflokk þegar nálgast fer kosningar. Það gerði hann bæði 1999 og 2003 og ætlar greinilega að halda uppteknum hætti. Ekki verður annað sagt en að þetta bragð hafi í bæði skiptin heppnast alveg ágætlega, því í bæði skiptin hefur flokkurinn uppskorið meira fylgi í kosningum en vísbendingar gáfu vonir um í upphafi kosningabaráttu.

Um þessar mundir liggur Framsóknarflokkurinn lægra í skoðanakönnunum en nokkru sinni fyrr á þessu ári. Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup/Capacent frá síðustu mánaðamótum tapar flokkurinn 7 af þeim 12 þingmönnum sem hann hefur nú og næði hvorki inn manni í Reykjavíkurkjördæmunum né á Suðurlandi. Ræða formannsins í gær verður að skoðast sem viðbrögð við þessari stöðu flokksins í könnunum.

Margt breyst

Síðan stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hófst 1995, hefur ýmislegt breyst í samfélagi okkar. Margt af því sem tekið hefur breytingum má rekja með beinum hætti til stjórnarstefnunnar. Stiklum á stóru í breytingunum: Ljóst er að bilið milli ríkra og fátækra hefur aukist. Þeim fjölgar sem hafa lifa á ofurlaunum. Opinber þjónusta hefur verið einkavædd og almannaþjónustufyrirtækjum breytt í hlutafélög. Sveitarfélögin hafa þurft að taka við auknum verkefnum án þess að tekjustofnar fylgi. Stóriðjuframkvæmdir hafa kallað fram óstöðugleika í efnahagskerfinu. Viðskiptahallinn hefur verið í sögulegu hámarki.

Stýrivextir Seðlabankans sömuleiðis. Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum lengjast. Raddir um að innheimta þurfi skólagjöld í Háskóla Íslands verða áleitnari. Kapphlaup stendur yfir milli orkufyrirtækjanna um rannsóknarleyfi á viðkvæmum háhitasvæðum landsins. Og svona mætti áfram telja. En eitt hefur ekki breyst og það er kynbundinn launamunur, hann er jafn mikill nú og þegar Framsókn settist í ríkisstjórn.

Sjaldan veldur einn …Af ræðu Jóni Sigurðssyni, formanns Framsóknarflokksins, má ráða að hann telji sig geta talið þjóðinni trú um að Sjálfstæðisflokkurinn einn beri ábyrgð á því sem aflaga hefur farið í stjórnartíð þessara tveggja flokka.er þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.




Skoðun

Sjá meira


×