Sekt fyrir vanrækslu á hrossum 24. nóvember 2006 05:45 Strangar kröfur eru um hrossahald yfir vetrartímann.
Hrosseigandi á Suðurlandi hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 700 þúsund krónur í sekt eða sæta ella fangelsi í 34 daga vegna grófrar vanrækslu á aðbúnaði, umhirðu og fóðrun á ellefu hrossum, sem hann var umráðamaður yfir og stóðu inni í hesthúsi í febrúar. Fjórum hrossum úr hópnum var lógað. Maðurinn hafði fjarlægt sjö af hrossunum ellefu úr hesthúsinu og neitaði síðan ítrekað að greina héraðsdýralækni og lögreglu frá því hvar þau væru niðurkomin, eftir að ákvörðun héraðsdýralæknis og yfirdýralæknis um aflífun hrossanna lá fyrir. Hinum fjórum, sem til náðist, var lógað eins og fyrr segir. Upphaf málsins má rekja allt aftur til ársins 2004 þegar búfjáreftirlitsmaður gerði athugasemdir um aðbúnað búfjár á umræddri jörð, sem hann taldi ekki vera samkvæmt lögum og reglum um búfjárhald. Maðurinn hefur búið á jörðinni ásamt fjölskyldu sinni og rekið umfangsmikla hrossarækt, bæði til töku á blóði úr fylfullum merum, til útflutnings og svo til ræktunar. Honum var jafnframt gert að greiða málskostnað upp á tæplega 600 þúsund krónur.
Innlent Mest lesið „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Innlent Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Innlent Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Erlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Erlent Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Erlent Fleiri fréttir Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Sjá meira