Erlent

Tuttugu ára dómur vegna morðs

Rudolp Holton var á mánudag dæmdur í tuttugu ára fangelsi í Tampa á Flórída fyrir að kyrkja eiginkonu sína.

Holton var fangi á dauðadeild en var látinn laus árið 2003 eftir að vitni í máli hans viðurkenndu að hafa logið í réttarhöldum yfir honum árið 1986. Hann var talinn hafa myrt hina sautján ára gömlu Katrina Graddy. Við DNA-rannsókn kom í ljós að hár sem fannst á líkama stúlkunnar var ekki úr Holton.

Frá því að Holton var látinn laus hefur hann ítrekað komist í kast við lögin, meðal annars fyrir að berja konuna sína með golfkylfu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×