Erlent

Þrefalt meiri ofdrykkja

Fimmti hver karlkyns Dani sem náð hefur sextíu og fimm ára aldri á við áfengisvandamál að stríða. Mælist ofdrykkja í þessum hópi þrefalt meiri nú en hún gerði fyrir tólf árum. Tíunda hver kona á sama aldri drekkur einnig of mikið. Þetta kom fram í Nyhedsavisen. Sérfræðingur danska heilbrigðisráðuneytisins segir kjarnann í þessum hópi hafa misnotað áfengi í rúm tuttugu ár og því muni áfengistengdir sjúkdómar verða algengari í framtíðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×