Erlent

Schwarzenegger snýr aftur

Arnold Schwarzenegger
Vann einn stærsta sigur repúblikana á þriðjudaginn.
Arnold Schwarzenegger Vann einn stærsta sigur repúblikana á þriðjudaginn. MYND/ap

Arnold Schwarzenegger vann sætan sigur í Kaliforníu þegar hann var endurkjörinn í ríkisstjóraembættið með yfirgnæfandi meirihluta og situr því annað kjörtímabil.

„Ég hef gaman af að gera framhaldsmyndir,“ sagði hann á sigurfagnaði í Beverly Hills, og bætti við: „Þetta er tvímælalaust uppáhaldsframhaldið mitt.“

Fyrir ári naut Schwarzenegger lítilla vinsælda, en sneri þá við blaðinu og hefur forðast flesta helstu leiðtoga Repúblikanaflokksins í kosningabaráttunni. Hann gerði samninga við demókrata á ríkisþinginu, til dæmis um harðar aðgerðir gegn losun gróðurhúsalofttegunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×