Skoðun

Hver ber ábyrgð á hverju?

Toshiki Toma skrifar
Aðflutt fólkMikið hefur verið rætt um innflytjendamál í fjölmiðlunum um þessar mundir. Sumir telja straumur erlendra verkamanna frá EES löndum vera ógn við íslensku þjóðina, og aðrir segja að innflytjendur séu nauðsynlegt vinnuafl í núverandi efnahagsaðstæðum á Íslandi. Sumt fólk eru miklir þjóðernisinnar og líta á málið út frá þeim augum, en aðrir eru meiri heimsborgarar, eða a.m.k. evrópusambandsinnar og líta því öðruvísi á málið. En kannski liggja skoðanir flestra einhvers staðar þarna á milli

Mér finnst nauðsynlegt að skoða málin vel og finna hver er kjarni þess sem skiptir máli í alvöru, í staðinn fyrir að byrja að æpa: „stöðvum útlendinga!"

Að mínu mati verður að skoða tvö atriði í þessu samhengi: Í fyrsta lagi hvort fjölgun erlendra verkamanna sé of mikil og hröð. Í öðru lagi hvað þjóðin eigi að gera til þess að byggja upp framtíðarsamfélag með innflytjendum.

Varðandi fyrsta atriðiðlangar mig til að minna Íslendinga á eitt grundvallar atriði, sem virðist gleymast í umræðunni þessa daga. Frjálst flæði launafólks innan EES byggir á hugmyndum um hinn frjálsan markað. Hugmyndafræði EES samningsins felur í sér að markaðurinn stýri flæði fólks á milli landa. Erlent vinnuafl sækir hingað á meðan eftirspurn er eftir því á vinnumarkaði en um leið og eftirspurnin hættir stöðvast flæðið.

Erlendir verkamenn flytjast til Íslands á meðan nóga vinnu er að fá. Stóriðju- og byggingaiðnaðurinn þarfnst erlendra verkamannanna til að halda verkefnum sínum áfram. Það er íslenska þjóðin sem stýrir þróun atvinnulífsins græðir vel á henni. Það er því ekki rétt að hugsa eins og að útlendingar þjóti til Íslands og krefjist vinnu. Ef þjóðin vill minnka straums erlends vinnuafls hingað til lands þarf hún að hægja á framþróun atvinnulífsins svo að hingað hætti að streyma fólk. Þessar ákvarðanir eru í höndum Íslendinga sjálfra en ekki útlendinga.

Ég er sammála því að fjölgun innflytjenda á Íslandi er ansi hröð og jafnvel of hröð. Mótatökukerfi hins opinbera fylgir ekki þessari hörðu þróun. Þetta veldur vanlíðan og óöryggi hjá þeim sem hingað koma og eykur vinnuálag hjá starfsmönnum sem sinna þessum málum hjá hinu opinbera. Gera þarf ráðstafanir til að mæta þörf fjölgun innflytjenda hér á landi.

Varðandi seinna atriðið, má spyrja íslnsku þjóðin hvað hún hyggst að gera í innflytjendamálum. Á íslenskt samfélag að halda áfram á sömu leið og það hefur gert undanfarið ár? Ég held að óhætt sé að segja að engin skýr stefna hafi verið mótuð hingað til. Þó það sé vissulega gagnrýnisvert getur leynst í því tækifæri. Hægt er að fara þá leiðir sem ég tek mjög mikilvægar þ.e. annars vegar að vinna með innflytjendur sjálfum, og í öðru lagi að líta á málefni innflytjenda í þverpólitísku ljósi enda varða þau alla landsmenn hvort sem þeir eru af íslenskum eða erlendum uppruna óháð flokkspólitík.

Höfundur er prestur innflytjenda.




Skoðun

Sjá meira


×