Erlent

Keypti eiturlyf og vændi

Forseti Bandarísku evangelistakirkjunnar, Ted Haggard, er sakaður um að hafa keypt sér metamfetamín og nudd af karlhóru. Í Evangelistasamtökunum í Bandaríkjunum eru allt að 30 milljónir meðlima.

Upp komst um málið þegar karlhóran, Mike Jones, gaf sig fram og sagði frá því að á undanförnum þremur árum hafi hann margsinnis átt samræði við Haggard. Ástæða þess að Jones upplýsti um málið var sú að hann sá Haggard, sem Jones hafði þangað til þekkt sem „Art“, tjá andúð sína á hjónaböndum samkynhneigðra í sjónvarpinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×