Erlent

Talinn flæktur í spillingarmál

Forsetinn veifar Chen Shui-bian í hópi taívanskra sjóliða.
Forsetinn veifar Chen Shui-bian í hópi taívanskra sjóliða. MYNND/AP

Saksóknarar í Taívan segjast hafa gögn sem sýni fram á að Chen Shui-bian, forseti landsins, sé flæktur í spillingarmál í tengslum við leynilegan sjóð, sem hann hefur haft afskipti af. Gögnin nægi til að leggja fram ákæru á hendur forsetanum.

Stjórnarflokkur Chens hélt á föstudag óvenjulegan fund þar sem ráðamenn flokksins kröfðust þess að forsetinn útskýrði fyrir þjóðinni hlut sinn í málinu.

Stjórnarandstæðingar hvöttu forsetann til að segja af sér hið fyrsta vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×