Erlent

Þúsundir í mótmælagöngu

Allt að sex þúsund manns tóku þátt í mótmælagöngu í borginni Kaohsiung í Taívan í gær, gegn forseta landsins Chen Shui-bian. Eiginkona hans, ásamt þremur stuðningsmönnum forsetans, hefur verið ásökuð um að hafa dregið að sér 450.000 dollara úr diplómatasjóði á árabilinu 2002–2006.

Mótmælendur krefjast þess að forsetinn segi af sér tafarlaust en hann mun þurfa að gera grein fyrir fjárdrættinum innan þriggja daga. Nýlegar skoðanakannanir í landinu gefa til kynna að um helmingur landsmanna vilji að Chen segi af sér vegna þessa máls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×