Erlent

Sótt verði um æðstu embætti

Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, segir það skipta máli að Íslendingar sækist eftir æðstu embættum innan norræna samstarfsins og því sé það mikið fagnaðarefni að Halldór Ásgrímsson verði næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

"Það skiptir auðvitað máli að við séum með góðan kandídat," segir Sigríður Anna. "Við vorum það að þessu sinni og ég er hæstánægð með þessa niðurstöðu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×