Fólskuleg líkamsárás kærð 8. október 2006 06:00
Danskur karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann lenti í ryskingum við 26 ára gamlan mann um fjögur leytið í fyrri nótt. Reyndust áverkar mannsins í andliti ekki eins alvarlegir og talið var í fyrstu og fékk hann að fara af slysadeildinni að lokinni ítarlegri skoðun. Tveir karlmenn, 22 og 26 ára, gistu í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík vegna málsins. Þeir hafa báðir komið við sögu lögreglu áður vegna ofbeldisbrota. Þeim hefur nú verið sleppt en þeir voru yfirheyrðir í gær vegna málsins. Líkamsárásin, sem að sögn vitna var sérlega fólskuleg, átti sér stað á gatnamótum Vegamótastígs og Laugavegs. Að sögn Bjarnþórs Aðalsteinssonar, fulltrúa í ofbeldisbrotadeild lögreglunnar, reyndist annar mannanna, sá yngri, ekki hafa átt aðild að árásinni. Maðurinn sem kærður hefur verið fyrir að hafa slegið og sparkað í erlendan mann, hefur játað að hafa lent í áflogum við manninn en neitar að hafa veitt honum áverka í andliti með höggum og spörkum. Rannsókn þessa máls er langt komin.
Innlent Mest lesið Heilbrigðisyfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi Erlent „Ákæruvaldið þarf að útskýra þetta“ Innlent Íbúar upplifa sig svikna af Icelandair Innlent Vill að hægt verði að afturkalla alþjóðlega vernd Innlent Tveir látnir eftir að rúta hafnaði á hliðinni Erlent Segir mótmælin ólögmæt og bótaskyldu til skoðunar Innlent Asískir ferðamenn virðist meðvitaðir þátttakendur í bókunarsvindli Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Heimurinn er að breytast, hvað sem er getur gerst“ Erlent Ný leið fyrir ferðamenn með átta eldfjöllum Innlent Fyrrverandi barnastjarna og feðgar meðal látinna Erlent Fleiri fréttir Kristrún á forsíðu Guardian: „Velferðarríki með ríkissjóð réttu megin við núllið“ Vill að hægt verði að afturkalla alþjóðlega vernd „Ákæruvaldið þarf að útskýra þetta“ Ný leið fyrir ferðamenn með átta eldfjöllum Segir mótmælin ólögmæt og bótaskyldu til skoðunar Íbúar upplifa sig svikna af Icelandair Meint ólögmæt mótmæli og alþjóðleg vernd Þungt hljóð í sálfræðingum sem felldu samning í gær Stjórn Virðingar mótmælir ósönnum fullyrðingum í fjölmiðlum Fiskibátur í neyð í mynni Ólafsfjarðar Asískir ferðamenn virðist meðvitaðir þátttakendur í bókunarsvindli Lögregla kölluð til vegna mótmæla Eflingar í Kringlunni Sjálfstæðismenn ræða seinkun en Framsókn skoðar að flýta Strand í viðræðum og jákvæður þrýstingur frá Trump Þórdís vill ekki fresta landsfundi Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Sjá meira