Erlent

Repúblikanar missa fylgi vegna hneykslis

Siðanefnd hefur rannsókn Doc Hastings, formaður siðanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, skýrði frá því að nefndin ætli sér að rannsaka Foley-málið.
Siðanefnd hefur rannsókn Doc Hastings, formaður siðanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, skýrði frá því að nefndin ætli sér að rannsaka Foley-málið. MYNDAFP

Fylgi Repúblikanaflokksins hefur dalað nokkuð samkvæmt skoðanakönnunum eftir að fréttist af ósæmilegri hegðun bandaríska þingmannsins Marks Foley gagnvart snúningapiltum á þinginu.

Demókrataflokkurinn hefur óspart notað sér málið til þess að hamra á andstæðingum sínum og meðal annars krafist þess að Dennis Hastert, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segði af sér vegna þess hvernig hann tók á málinu í upphafi.

Hastert var sakaður um að hafa reynt að gera lítið úr alvöru þess, þar sem hann gagnrýndi fyrst og fremst demókrata fyrir að gera þetta að fjölmiðlamáli í aðdraganda þingkosninga. Einnig hefur hann verið sakaður um að hafa vitað af málinu áður en það komst í fjölmiðla fyrir viku, en hann neitar því.

Hastert hafnar öllum kröfum um afsögn, en á fimmtudaginn sneri hann við blaðinu og segir Repúblikanaflokkinn taka fulla ábyrgð á málinu. George W. Bush Bandaríkjaforseti og fleiri af áhrifamönnum í Repúblikanaflokknum hafa lýst yfir stuðningi sínum við Hastert, þar á meðal Bill Frist, leiðtogi flokksins í öldungadeild þingsins, og George Bush eldri.

„Hann á ekki að verða neitt fórnarlamb,“ sagði James A. Baker, fyrrverandi utanríkisráðherra, í gær.

Málið snýst um að Foley hefur árum saman sent snúningapiltum á þingi dónaleg skilaboð í tölvupósti. Hann sagði af sér þingmennsku í lok síðustu viku, eftir að málið komst í hámæli, skráði sig í áfengismeðferð og hefur einnig upplýst að hann sé samkynhneigður. Einnig segist hann sjálfur hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi á unglingsaldri.

Siðanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti á fimmtudaginn að hefja ítarlega rannsókn á málinu. Nefndin ætlar að kalla nærri fimmtíu manns til yfirheyrslu vegna málsins. Margir þeirra eru þingmenn eða starfsfólk þingsins. Rannsóknin mun þó einkum beinast að því hvernig ráðamenn á þinginu tóku á málinu, þegar fyrst fór að fréttast af því, frekar en að hegðun Foleys sérstaklega.

Nefndin ætlar að taka sér nokkrar vikur í að rannsaka málið, og fullyrðir ekkert um það hvort rannsókninni verði lokið fyrir þingkosningarnar, sem haldnar verða 7. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×