Erlent

Mótmælendur færri og rólegri

Þúsundir Ungverja söfnuðust saman til að mótmæla lygahneykslinu í Búdapest í gærkvöldi, fimmta kvöldið í röð. Hópurinn var heldur fámennari og rólegri en kvöldið áður. Talsmenn stærsta stjórnarandstöðuflokksins greindu frá því á fimmtudag að ákveðið hefði verið að fresta fjöldafundi um helgina, vegna sprengjuhótana.

Mikið spennuástand ríkir í stjórnmálum landsins í kjölfar þess að dreift var upptöku úr ræðu forsætisráðherrans þar sem hann talaði um að stjórnarliðar hefðu logið að þjóðinni fyrir þingkosningar í apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×