Innlent

Félagsmönnum fjölgar ört

Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness hafa aldrei verið jafn margir og nú. Í árslok 2004 voru félagar um 1.800 talsins og hafði fjölgað um tæp tvö hundruð á einu ári. Í árslok í fyrra voru þeir tæplega nítján hundruð og hafði þeim fjölgað um rúmlega sjötíu á árinu.

Á vef verkalýðsfélagsins kemur fram að það sem af er þessu ári hefur félögum fjölgað um þrjú hundruð og eru þeir því nú tæplega 2.200. Mest hefur fjölgunin verið hjá Norðuráli, Íslenska járnblendifélaginu, HB-Granda og Smellinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×