Persónuleg gögn ekki úr landi 25. ágúst 2006 07:30 Bandarískir hermenn Herliðið á Keflavíkurflugvelli yfirgefur landið á næstu vikum, en gögn um íslenska starfsmenn verða eftir. MYND/Vilhelm
Gögn sem geyma persónulegar upplýsingar um starfsmannahald bandaríska herliðsins á Keflavíkurflugvelli verða sett í geymslu hjá íslenska ríkinu. Að sögn Friðþórs Eydal, upplýsingafulltrúa varnarliðsins, verður gengið frá samningum þess efnis á næstunni. Varnarliðið hefur ekki viljað afhenda starfsmönnunum þessi gögn og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins höfðu ýmsir starfsmenn áhyggjur af því að gögnin yrðu flutt úr landi. „Varnarliðið og utanríkisráðuneytið hafa rætt um að ríkið taki þessi starfsmannahaldsgögn til geymslu,“ segir Friðþór. „Allar upplýsingar sem liggja hjá varnarliðinu eru aðgengilegar starfsmönnunum og þeir geta fengið afrit af eigin upplýsingum. Þær verða þó ekki látnar af hendi til þeirra, þar sem þær eru í eigu varnarliðsins. Reglur bandarískra stjórnvalda kveða á að geyma eigi gögn í ákveðinn tíma, þrátt fyrir að enginn hafi aðgang að þeim nema þeir sem þau varða. Þau munu ekki liggja á glámbekk.“ Gögn um læknisskoðanir sem starfsmenn hafa farið í hjá hernum fara ekki í geymslu hjá ríkinu, heldur til Bandaríkjanna til vörslu, þar sem þeim verður eytt eftir ákveðinn tíma, að sögn Friðþórs.
Innlent Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fleiri fréttir Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Sjá meira