Erlent

Nýir starfsmenn lækka í launum

Flugvél Finnair Félagið vill nú lækka laun nýrra starfsmanna um næstum þriðjung.
Flugvél Finnair Félagið vill nú lækka laun nýrra starfsmanna um næstum þriðjung.

Finnsk-íslenska flugfélagið Finnair ætlar að lækka launin hjá fimm hundruð nýjum starfsmönnum um þrjátíu prósent frá því sem nú er. Þetta kemur fram í vefútgáfu Hufvudstads­bladet.­

Flugfreyjur og flugliðar geta tekið þessu eða hafnað. Ef verkalýðshreyfingin verður með mótþróa munu ráðningarnar fara fram í gegnum dótturfélag Finnair í Eistlandi.

Íslendingar eiga rúmlega 20 prósent í Finnair á móti 80 prósentum finnska ríkisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×