Erlent

Norsk vegabréf á vergangi

Norðmenn hafa týnt 95 þúsund vegabréfum síðan Noregur hóf þátttöku í Schengen-samstarfinu, kom fram á fréttasíðu norska blaðsins Aftenposten á fimmtudag.

Veldur þetta yfirvöldum áhyggjum, því norsk vegabréf eru afar vinsæl meðal undirheimafólks þar sem auðvelt er fyrir Norðmenn að útvega sér áritanir til hinna ýmsu landa, að sögn Tormod Ødegård hjá norsku lögreglunni.

Einkum eru Norðmenn sem leigja vegabréf sín út til fólkssmyglara til vandræða, því gómi yfirvöld fólk með slík vegabréf, þá segjast réttir eigendur þeirra einfaldlega hafa tapað skilríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×