Erlent

Ræða leiðir til að binda enda á átökin

stríðið þyrmir ekki ferfætlingum Særður köttur sést hér á gangi við brakið úr fiskibátum í höfn í Ouzai-úthverfinu í Beirút eftir loftárásir Ísraela á það í gær.
stríðið þyrmir ekki ferfætlingum Særður köttur sést hér á gangi við brakið úr fiskibátum í höfn í Ouzai-úthverfinu í Beirút eftir loftárásir Ísraela á það í gær. MYND/AP

 Fulltrúar ríkisstjórna Bandaríkjanna og Frakklands héldu í gær áfram viðræðum bak við luktar dyr í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York um tillögu að ályktun öryggisráðs SÞ um það hvernig binda megi enda á átökin milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða í Líbanon. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, frestaði því í gær að hefja áformað sumarfrí sitt til að leggja sitt af mörkum til að koma á friði.

Blair telur að næstu dagar ráði úrslitum fyrir samningu ályktunarinnar, að því er talsmaður hans sagði.

Erindrekar innan öryggisráðs SÞ tjáðu AP-fréttastofunni að enn strandaði samkomulag á því hvort skyldi koma á undan, vopnahlé eða að senda fjölþjóðlegt friðargæslulið á vettvang.

Frakkar vilja að öryggisráðið krefjist þess að tafarlaust verði bundinn endi á hin vopnuðu átök, og fyrst eftir að vopnin þögnuðu yrði friðargæslulið sent á vettvang. Bandaríkjamenn telja aftur á móti að eigi vopnin að þagna verði það að falla saman við aðrar aðgerðir til lausnar á deilunni, þar á meðal að gera út friðargæslulið. Bandaríkjamenn og Bretar hafa hingað til stutt Ísraela með því að standa gegn kröfum um tafarlaust vopnahlé, fyrr en mjög hefur dregið úr hernaðargetu Hizbollah.

Ísraelsher hélt áfram loftárásum á meint vígi Hizbollah-liða víða í Líbanon í gær, brýr á aðalþjóðveginum norður frá Beirút voru sprengdar upp og síðasta meginsamgönguæðin til Sýrlands þar með rofin. Að minnsta kosti 28 landbúnaðarverkamenn létu lífið er ísraelskar herþotur létu sprengjum rigna á vöruhús nærri landamærum Líbanons og Sýrlands. Talsmenn Hizbollah sögðu skæruliða hafa fellt sex ísraelska hermenn í bardögum í landamæraþorpum í Suður-Líbanon. Hizbollah-liðar skutu vel á annað hundrað sprengiflaugum suður yfir landamærin. Ísraelsk arabafjölskylda lét lífið í einu húsinu sem flaugarnar lentu á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×