Innlent

Nýr spítali haldi áætlun

Áríðandi er að undirbúningur við byggingu nýs spítala haldi áætlun, segir í ályktun frá stjórn hjúkrunarráðs Landspítalans. Stjórnin segir frestun á framkvæmdum geta haft alvarlegar afleiðingar þar sem húsnæðisskortur sé nú þegar óviðunandi. Með nýrri byggingu muni þjónusta við sjúklinga batna, hagkvæmni í rekstri aukast og aðstaða starfsmanna og nemenda verða betri.

Þá fagnar stjórnin því hversu mikill fjöldi nemenda hefur innritast til náms í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri næsta haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×