Innlent

Stúlkan enn í öndunarvél

Slys Stúlkan sem lenti í bílslysi ásamt fjórum öðrum, við Varmahlíð í Skagafirði í byrjun mánaðarins, er enn í gjörgæslu. Þar er henni haldið sofandi í öndunarvél en hún er mikið slösuð. Að sögn læknis á gjörgæsludeildinni er líðan hennar eftir atvikum. Ástand hennar er alvarlegt en stöðugt.

Hin stúlkan sem slasaðist alvarlega, var útskrifuð á dögunum af gjörgæsludeildinni og liggur nú á bæklunardeild Landspítalans. Ein stúlka lést í bílslysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×