Brazauskas hefur sagt af sér 2. júní 2006 06:45 Brazauskas á ríkisstjórnarfundi Algirdas Brazauskas sagði af sér ásamt ríkisstjórninni í fyrradag. Zigmantas Balcytis stýrir bráðabirgðastjórn uns ný verður mynduð.
Ríkisstjórnin í Litháen er fallin eftir að einn stjórnarflokkanna sagði sig úr stjórninni. Algirdas Brazauskas forsætisráðherra sagði formlega af sér á miðvikudag, en Zigmantas Balcytis fjármálaráðherra var fenginn til þess að stýra bráðabirgðastjórn þangað til ný ríkisstjórn tekur við. Ég sé enga möguleika til þess að gegna skyldum mínum og segi því af mér ásamt ríkisstjórninni, sagði Brazauskas forsætisráðherra á miðvikudag eftir að ljóst var að Verkamannaflokkurinn væri genginn úr stjórnarsamstarfinu. Verkamannaflokkurinn hefur yfir 31 þingsæti að ráða á þinginu, sem er skipað 141 þingmanni. Stjórnina skorti þó nokkuð til þess að hafa meirihluta á þingi, þannig að Brazauskas átti engan kost annan en að segja af sér. Valdas Adamkus forseti hefur nú tveggja vikna frest til þess að gera tillögu um nýjan forsætisráðherra, sem síðan verður borin undir þingið. Verkamannaflokkurinn sagði sig úr stjórnarsamstarfinu eftir að þrír af fimm ráðherrum flokksins höfðu verið ásakaðir um að hafa misnotað fjármuni bæði ríkis og flokks. Ríkisstjórnin hafði áður orðið fyrir áfalli í apríl síðastliðnum þegar annar stjórnarflokkur, Nýtt bandalag, dró sig út úr stjórninni til þess að mótmæla því að leiðtogi þess flokks, Arturas Paulauskas, hafi verið rekinn úr stöðu þingforseta.
Erlent Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira