Áttu ekki pappír í áritunina 2. júní 2006 07:30 Kristin Halvorsen Norski fjármálaráðherrann Kristin Halvorsen var stöðvuð við rússnesku landamærin af því að Rússarnir áttu ekki pappír í vegabréfsáritanir. fréttablaðið/teitur
Norski fjármálaráðherrann, Kristin Halvorsen, fékk ekki að fara yfir rússnesku landamærin til þess að skoða landamærastöðina þar í opinberri heimsókn hjá vararíkisstjóranum hinum megin við landamærin. Ástæðan var sú að það var ekki til pappír í vegabréfsáritun. Fjármálaráðherrann, Nikaolai Beresjnoj vararíkisstjóri og Evgenij Aleksejev tollstjóri höfðu komið sér saman um að skoða tollstöðvarnar hvoru megin landamæranna í þeim tilgangi að opna landamærin meira en nú er og auka samstarfið milli þjóðanna. Fréttavefurinn Dagbladet segir að Halvorsen hafi skömmu áður verið á fundi í Finnmörku og talað þar fallega um að bæta samstarfið milli landanna, til dæmis milli tollyfirvalda, og einfalda vegabréfaútgáfu til að auðvelda heimsóknir milli landanna. Hún hefði sagt að sérstök áritun fyrir norðlægar slóðir, Barentsáritun, kæmi til greina. Þegar Halvorsen ætlaði svo að fara yfir landamærin til að hitta Rússana í landamærastöð sem var byggð fyrir norska peninga árið 2002 var hún stöðvuð. Rússarnir komu því bara yfir til Noregs og fundurinn var haldinn í norsku landamærastöðinni í staðinn.
Erlent Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira